Nígería: Börn frá svæðum Boko Haram sæta illri meðferð
Ný skýrsla Amnesty International greinir frá hræðilegum afleiðingum átaka stjórnvalda og Boko Haram fyrir börn í norðausturhluta Nígeríu. Börn sem flýja svæði Boko Haram enda oftar en ekki í verri aðstæðum. Í besta falli eru þau á vergangi í harðri lífsbaráttu þar sem þau hafa lítinn eða engan aðgang að menntun. Í versta falli eru þau handtekin að geðþótta af hernum og þeim haldið árum saman við aðstæður sem teljast til pyndinga og annarrar illrar meðferðar. Einnig kemur fram í skýrslunni að alþjóðlegir aðilar hafi styrkt gallaða endurhæfingu fyrir meinta fyrrum hermenn Boko Haram sem í raun er ólögmætt varðhald barna og fullorðinna.

