Sigrar í baráttunni fyrir aðgengi að þungunarrofi
Aðgengi að öruggu þungunarrofi er nauðsynlegt til að unnt sé að njóta mannréttinda til fulls. Á síðustu 25 árum hafa fleiri en 50 lönd breytt löggjöf og bætt aðgengi að þungunarrofi.
Aðgengi að öruggu þungunarrofi er nauðsynlegt til að unnt sé að njóta mannréttinda til fulls. Á síðustu 25 árum hafa fleiri en 50 lönd breytt löggjöf og bætt aðgengi að þungunarrofi.
Þann 17. janúar síðastliðinn var aðgerðasinninn og stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalny handtekinn á flugvellinum í Moskvu. Hann rétt komst lífs af í ágúst 2020 eftir að eitrað var fyrir honum en hann hefur verið að jafna sig í Þýskalandi síðustu 5 mánuði. Hann er samviskufangi og var handtekinn að geðþótta af pólitískum ástæðum.
Eftirtalin félög skora á íslensk stjórnvöld að fullgilda Samning Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum en samningurinn var samþykktur af 122 ríkjum á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York þann 7. júlí 2017. Hinn 24. október sl. höfðu 50 ríki fullgilt samninginn og mun hann því taka gildi í dag, þann 22. janúar 2021.
Þitt nafn bjargar lífi 2020 gekk vonum framar en samtals söfnuðust 70.405 undirskriftir til stjórnvalda á vefsíðu Íslandsdeildar Amnesty International sem er rúmlega það markmið sem deildin stefndi að og er met í fjölda rafrænna undirskrifta á vefsíðunni fyrir þessa árlegu herferð.
Íranski/sænski fræðimaðurinn Ahmadreza Djalali hefur verið í einangrunarvist í fangelsi í Tehran síðan 24. nóvember 2020 þegar hann fékk þær fréttir að aftaka hans væri yfirvofandi. Seint í desember bárust þær fréttir að aftökunni hefði verið frestað um mánuð. Enn er hætta á að hann verði tekinn af lífi á næstunni.
Hundruð friðsælla mótmælenda, þar á meðal börn, eiga yfir höfði sér langa fangelsisvist fyrir þátttöku í fjöldamótmælum. Brotið er á tjáningarfrelsi og fundafrelsi fólksins.
Amnesty International hefur fylgst grannt með málinu um beiðni Bandaríkjanna um framsal Julian Assange frá Bretlandi. Þann 4. janúar 2021 hafnaði dómstóll í London beiðni um framsal en tveimur dögum síðar var Assange neitað um lausn úr haldi gegn tryggingu. Amnesty International fagnar þeirri ákvörðun að hafna framsalsbeiðninni en fordæmir að hann hafi ekki verið leystur úr haldi gegn tryggingu. Julian Assange hefur verið í haldi í rúmt ár vegna framsalsbeiðni til Bandaríkjanna.
Árið 2020 hefur verið erfitt ár en þrátt fyrir það hafa mannréttindasigrar náð fram að ganga sem ber að fagna. Starf Amnesty International ber árangur með ýmsum hætti. Einstaklingar hafa verið leystir úr haldi, ákærur felldar niður, réttlæti náðst, breytingar gerðar á lögum til hins betra og fyrirtæki tekið ábyrgð á starfsemi sinni. Þetta er meðal sigra sem ber að fagna á þessu ári. Smelltu hér til að sjá aðrar góðar fréttir á árinu.
Blaðakonan Zhang Zhan frá Wuhan sem fjallaði um efni tengt kórónuveirufaraldrinum er í haldi og ákærð fyrir að „ýta undir erjur og vandræði”. Zhang Zhan hvarf í Wuhan þann 15. maí og síðar kom í ljós að hún var í haldi lögreglunnar í Shanghai í meira en 640 km fjarlægð.
Fjórir karlar og ein kona eiga yfir höfði sér aftökur í Bandaríkjunum. Ríkisstjórn forsetans fyrirskipaði upptöku aftöku alríkisins aftur eftir 17 ár. Síðastliðin 17 ár hefur dauðarefsingunni einungis verið beitt innan fárra ríkja.
Ibrahim Ezz el-Din, rannsakandi á sviði mannréttinda, var handtekinn þann 11. júní 2019 og fyrstu 167 dagana vissi fjölskylda hans ekki um afdrif hans þar sem hann sætti þvinguðu mannshvarfi af hálfu stjórnvalda. Varðhald yfir honum var framlengt um 45 daga þann 31. október 2020. Hann sætti pyndingum í varðhaldi og heilsu hans hefur hrakað síðan hann var handtekinn. Hann er í áhættuhópi vegna áhrifa COVID-19 sem hefur verið að dreifast hratt í yfirfullum fangelsum í Egyptalandi.
Íslandsdeild Amnesty International skorar á ungmenni á aldrinum 16-25 ára að taka þátt í mannréttindaáskorun! Hefur þú áhuga á mannréttindum? Búðu til stutt vídjó, í verðlaun er úlpan Dyngja frá 66° NORÐUR.