Ný Netflix heimildarmynd „The Social Dilemma”
Það sem árið 2020 hefur kennt okkur er hversu nauðsynlegir netheimar eru fyrir félagsleg tengsl og samskipti. Netþjónustur eins og Facebook og Google voru líflína okkar þegar heimsfaraldurinn skall á og gerðu okkur kleift að eiga í samskiptum við fjölskyldu og vini, sinna vinnu og námi að heiman ásamt því að vera okkar helsti staður til að leita að upplýsingum um mál tengd heilsu okkar. Ný heimildarmynd á Netflix „The Social Dilemma“ sýnir fram á að þessar netþjónustur hafa þó kostað okkur ákveðin mannréttindi, þar á meðal geðheilsuna.

