Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International 2020
Aðalfundur Amnesty International verður haldinn fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
Aðalfundur Amnesty International verður haldinn fimmtudaginn 18. júní 2020 kl. 17:00 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð.
„Ég næ ekki andanum“ kvað George Floyd á meðan lögreglumaður kraup yfir honum, þrýsti hné sínu að hálsi hans og neitaði að færa sig af honum í sjö mínútur. „Ég er að deyja!“ sagði George með hendurnar bundnar fyrir aftan bak.
Það er engin auðveld lausn við kórónuveirufaraldrinum. Það er þó skýrt hvaða viðbrögð eru ekki viðeigandi. Sum stjórnvöld hafa brugðist við faraldrinum á ótrúlegan hátt sem einkennist af hentistefnu, furðulegum vísindum og algjörri vanvirðingu gagnvart mannréttindum.
Saïkou Yaya Diallo, aðgerðasinni og aðstoðarmaður lögfræðings hjá stjórnarandstöðuflokknum National Front for the defense of the constitution (FNDC) var handtekinn þann 7. maí og settur í varðhald í Conakry, höfuðborg Gíneu, í kjölfar atviks sem átti sér stað á blaðamannafundi hjá stjórnmálaflokknum. Þann 12. maí var hann kærður fyrir líkamsárás, ofbeldi, hótanir og óspektir á almannafæri. Saïkou er með sykursýki sem krefst sérstaks mataræðis og meðhöndlunar og því í áhættuhópi vegna kórónuveirufaraldursins. Sama dag staðfestu stjórnvöld í Gíneu 58 tilfelli af COVID-19 smitum í fangelsinu og þrjú dauðsföll af völdum veirunnar.
Ráðstefnan fer fram á Laugarvatni dagana 16. – 19. júlí og verður haldin í Héraðsskólanum. Staðsetningin er frábær og náttúran yndisleg; fjalllendi, Laugarvatn og græn svæði. Þátttakendum verður boðið í Fontana heilsulind þar sem er að finna potta og gufur við vatnið.
Tatyana Revva, læknir frá Volgograd í suðurhluta Rússlands á yfir höfði sér málaferli sem gætu leitt til þess að hún missi lækningaleyfið í kjölfar þess að hún kvartaði yfir skorti á hlífðarbúnaði og öðrum vandamálum tengdum kórónuveirufaraldrinum á spítalanum þar sem hún starfar.
Árásir gegn fjölmiðlafólki og gagnrýnendum stjórnvalda vegna viðbragða við kórónuveirufaraldrinum hindra að hægt sé að takast á við hann. Amnesty International varar við ritskoðun á mikilvægum upplýsingum um faraldurinn um heim allan og kallar eftir því að stjórnvöld setji lýðheilsu í forgang fram yfir verndun orðspors síns.
Íslandsdeild Amnesty International kynnir með stolti fyrsta fulltrúa deildarinnar í Global Youth Collective, alþjóðlegu ungmennaráði Amnesty International. Þórhildur Elísabet Þórsdóttir var valin í byrjun maí sem fulltrúi okkar í ráðinu. Hún hefur verið meðlimur ungliðahreyfingar Íslandsdeildarinnar um langt skeið og sinnt þar ýmsum sjálfboðaliða- og aðgerðastörfum. Hún var formaður stjórnar ungliðahreyfingarinnar frá 2016 til 2019, verið fulltrúi deildarinnar á ráðstefnum og fundum erlendis og stofnaði Háskólafélag Amnesty í Háskóla Íslands ásamt öðrum haustið 2018. Þórhildur situr nú í aðalstjórn Íslandsdeildarinnar og er jafnframt yngsti stjórnarmeðlimurinn en hún var aðeins 19 ára þegar hún var kosin í stjórnina í mars 2019.
Þann 17. apríl heyrði Jani Silva sex byssuskot í um 30 metra fjarlægð frá heimili sínu í Puerto Asís í suðvesturhluta Kólumbíu. Fimm dögum síðar heyrði hún þrjú byssuskot, þá í um 50 metra fjarlægð frá heimili sínu. Þessi tvö atvik áttu sér stað eftir að frjálsu félagasamtökin Inter-Ecclesiastical Commission of Justice and Peace fengu upplýsingar um fyrirhugað morð á Jani í lok mars.
Fram kemur í ársskýrslu Amnesty International fyrir árið 2019 að mótmælendur í Afríku sunnan Sahara hafi barist fyrir réttindum sínum gegn átökum og kúgun þrátt fyrir hættu á skotárásum eða barsmíðum. Í skýrslunni er greint frá mótmælum og harkalegum viðbrögðum stjórnvalda, mannréttindabrotum og átökum víðsvegar á svæðinu. Herjað var á aðgerðasinna og fjölmiðlafólk og þúsundir óbreyttra borgara þjáðust vegna átaka.
Á meðan margir halda sig heima fyrir í einangrun, sóttkví eða vegna yfirstandandi samkomubanns þá reiðir fólk sig mun meira á síma, fartölvur og önnur fjarskiptatæki til að halda sambandi.
Þann 18. apríl 2020 voru 15 leiðtogar og aðgerðasinnar handteknir fyrir ólöglega samkomu sem átti sér stað sex mánuðum áður. Þetta er nýjasta dæmið um hvernig lögreglan reiðir sig á óskýr lög um allsherjarreglu sem voru mikið notuð árið 2019 til að koma í veg fyrir fjölmenn og friðsæl mótmæli. Þessar handtökur eru þungt högg fyrir tjáningarfrelsið í Hong Kong.