1.586 niðurstöður

Raða eftir
  • Mannréttindasigrar á árinu 2020 til að fagna

    Árið 2020 hefur verið erfitt ár en þrátt fyrir það hafa mannréttindasigrar náð fram að ganga sem ber að fagna. Starf Amnesty International ber árangur með ýmsum hætti. Einstaklingar hafa verið leystir úr haldi, ákærur felldar niður, réttlæti náðst, breytingar gerðar á lögum til hins betra og fyrirtæki tekið ábyrgð á starfsemi sinni. Þetta er meðal sigra sem ber að fagna á þessu ári. Smelltu hér til að sjá aðrar góðar fréttir á árinu.

  • Heilsa mannréttindafrömuðs í haldi er í hættu

    Ibrahim Ezz el-Din, rannsakandi á sviði mannréttinda, var handtekinn þann 11. júní 2019 og fyrstu 167 dagana vissi fjölskylda hans ekki um afdrif hans þar sem hann sætti þvinguðu mannshvarfi  af hálfu stjórnvalda. Varðhald yfir honum  var framlengt um 45 daga þann 31. október 2020. Hann sætti pyndingum í varðhaldi og heilsu hans hefur hrakað síðan hann var handtekinn. Hann er í áhættuhópi vegna áhrifa COVID-19 sem hefur verið að dreifast hratt í yfirfullum fangelsum í Egyptalandi. 

  • Ábyrgðarskylda FIFA í garð farandverkafólks í Katar

    Nú eru tvö ár þar til flautað verður til leiks á heimsmeistaramótinu í Katar 2022. Íslandsdeild Amnesty International kallar eftir því að KSÍ taki að sér virkt hlutverk í að tryggja að alþjóðaknattspyrnusambandið  FIFA uppfylli samfélagslega ábyrgð um að virða mannréttindi og að þau svari fyrir þau mannréttindabrot sem tengd eru undirbúningi fyrir mótið.   

  • Síle: Lögreglan refsar okkur fyrir að mótmæla

    Gustavo Gatica var 21 árs þegar hann blindaðist í mótmælum í Síle af völdum lögreglu. Mál hans er eitt af málunum okkar í ár í árlegri herferð okkar Þitt nafn bjargar lífi. Í fyrstu vildu yfirvöld ekki taka ábyrgð og gáfu til kynna að mótmælendur hefðu sjálfir slasað Gustavo. Amnesty International rannsakaði harkaleg viðbrögð yfirvalda við fjöldamótmælin sem hófust í október 2019. Í kjölfarið hóf ríkissaksóknari að rannsaka málið. Gustavo skrifar hér um málið sitt. Hann lýsir því hversu mikið stuðningur hefur skipt hann máli og hvernig það er að venjast nýju lífi.

  • Víetnam: Baráttukona fyrir mannréttindum í hættu á að vera pynduð

    Baráttukonan Pham Thi Doan Trang var handtekin þann 6. október 2020 fyrir friðsamar aðgerðir og er í einangrun. Hún á yfir höfði sér 20 ára fangelsi og er í hættu á að sæta pyndingum. Doan Trang er höfundur og blaðakona sem hefur verið ötull talsmaður mannréttinda. Undanfarin ár hefur hún orðið fyrir endurtekinni áreitni, hótunum og árásum af hálfu yfirvalda.

  • Amnesty International lítur inn á við

    Morðið á Georg Floyd í haldi lögreglu beindi sjónum að sögulegum og kerfisbundnum kynþáttafordómum sem enn ríkja, ekki einungis í Bandaríkjunum heldur um heim allan. Amnesty International ákvað í kjölfarið að líta inn á við og kanna hvort uppbygging og starfsemi aðalstöðva samtakanna, sem eiga sér næstum 60 ára sögu, viðhaldi óafvitandi rótgrónum kynþáttafordómum.

  • Nígería: Stöðvum refsileysi vegna lögregluofbeldis

    Í Nígeríu hefur almennum borgurum verið nauðgað, þeir pyndaðir og kúgaðir og jafnvel myrtir af lögreglumönnum sem tilheyra sérsveit lögreglu gegn ránum, SARS (e. Special Anti-Robbery Squad). Stjórnvöld í Nígeríu neyddust til að leggja niður sérsveitina í kjölfar mótmæla en það er ekki nóg. Fórnarlömb þessara glæpa bíða enn réttlætis. Kallað er eftir því að bundið verði enda á refsileysi vegna glæpa SARS-sérsveitarinnar.

  • Kórónuveiran: Andlegt álag heilbrigðisstarfsfólks

    Kveðið er á um rétt til bestu mögulegu geðheilsu í alþjóðalögum en raunin er sú að á heimsvísu eru fáir sem hafa aðgang að góðri geðheilbrigðisþjónustu. Kórónuveirufaraldurinn hefur gert vandamálið enn stærra. Í nýlegri könnun Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar kom í ljós að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu er takmarkað eða ekkert.