Nýi vefurinn okkar tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna
Nýr vefur Íslandsdeildar Amnesty International hefur verið tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna í flokki samfélagsvefja. Íslensku vefverðlaunin, uppskeruhátíð vefiðnaðarins á Íslandi, verða haldin á vegum Samtaka vefiðnaðarins (SVEF) þann 22. febrúar.

