Belgía: Umsækjendur um alþjóðlega vernd neitað um skjól
Í kringum 2600 umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu eru bjargarlausir sökum þess að belgísk stjórnvöld neita að veita þeim skjól og aðrar nauðsynjar og þjónustu.
Í kringum 2600 umsækjendur um alþjóðlega vernd í Belgíu eru bjargarlausir sökum þess að belgísk stjórnvöld neita að veita þeim skjól og aðrar nauðsynjar og þjónustu.
Í kjölfar umræðu í samfélaginu um brottvísanir barna til Grikklands vill Íslandsdeild Amnesty International koma eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri. Nú eru 75 ár síðan Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Í fjórtándu grein hennar segir: „Rétt skal mönnum vera að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum.“ Réttur flóttamanna er tryggður í alþjóðasamningum og er þeirra mikilvægastur flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1951. Þá ber að nefna að íslensk stjórnvöld fullgiltu Barnasáttmálann árið 1992 og lögfestu árið 2013.
Í dag, á Alþjóðlega mannréttindadaginn, eru liðin 75 ár frá því að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Hún var skrifuð og samþykkt eftir að rykið settist eftir seinni heimstyrjöldina og uppbyggingin rétt að hefjast. Heimurinn hafði aldrei séð og upplifað slíkar hörmungar, svona úthugsuð, nákvæm og víðfeðm illvirki. Grimmdarverk seinni heimstyrjaldarinnar sýndu svo bersýnilega að virðing fyrir mannréttindum og mannlegri reisn var langt frá því að vera algild og breytinga var þörf. Heimurinn þurfti áminningu um að sérhver manneskja er borin frjáls og jöfn öðrum að virðingu og réttindum.
Íslandsdeild Amnesty International gerir alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðlega vernd) og leggst gegn framlagningu frumvarpsins í óbreyttu formi.
Irina Danilovich er hjúkrunarfræðingur og aðgerðasinni frá Krímskaga en svæðið hefur verið hernumið af Rússlandi síðan 2014. Hún er í haldi rússneskra yfirvalda. Hún hefur vakið athygli á vanda innan heilbrigðiskerfisins á svæðinu og opinberlega fordæmt pólitískar ofsóknir gegn mannréttindafrömuðum og aðgerðasinnum. Einstaklingar sem hafa andmælt hernámi Rússlands, ólögmætri innlimun Krímskaga og mannréttindabrotum frá árinu 2014 hafar sætt ofsóknum, ógnunum, fölskum ákærum og þvinguðum mannshvörfum.
Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Þórunn Pálína Jónsdóttir lögfræðingur deildarinnar afhentu Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra ákall með uppfærðum undirskriftalista um vopnahlé í átökum Ísraels og vopnaðra hópa á Gaza þann 23. nóvember. Í heildina söfnuðust 11.733 undirskriftir. Utanríkisráðherra hafði áður móttekið sama uppfærða listann þann 21. nóvember.
Íslandsdeild Amnesty International styður frumvarpið og fagnar hverju skrefi í átt að bættum mannréttindum og til tryggingar þeirrar réttarverndar sem fatlað fólk á rétt á.
Listakonan Julia Mai Linnéa Maria málaði nýverið glæsilegt vegglistaverk á útivegg kaffihússins Kaffi Vest í Vesturbæ Reykjavíkur. Verkið er af pólska kvenréttindafrömuðinum Justynu Wydrzyńska sem berst fyrir réttinum til öruggs þungunarrofs í heimalandi sínu.
Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International og Þórunn Pálína Jónsdóttir lögfræðingur deildarinnar afhentu Bjarna Benediktssyni utanríkisráðherra ákall með 6944 undirskriftum þann 3. nóvember. Forsætisráðuneytið fékk einnig undirskriftirnar en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gat ekki veitt þeim viðtöku sökum fjarveru erlendis.
Hin árlega og alþjóðlega herferð, Þitt nafn bjargar lífi, hefur svo sannarlega sýnt að hægt er að umbreyta lífi þolenda mannréttindabrota með þeim einfalda hætti að setja nafn sitt á bréf til stjórnvalda og krefjast umbóta í máli þeirra.
Aukin áhersla á betrun, sáttamiðlun og samfélagsþjónustu sem fullnustuúrræði er kærkomin og mikilvæg fyrir ungt fólk sem hefur misstigið sig og komist í kast við lögin. Telur Amnesty International það ákaflega jákvætt að börn fái að afplána óskilorðsbundna dóma með samfélagsþjónustu. Tilgangurinn með þessu frumvarpi ætti að mati Amnesty International fyrst og fremst að vera sá að reyna að halda ungum brotamönnum frá fangelsi eins og mögulegt er, þ.e. í þeim tilvikum þegar um ítrekaða skilorðsbundna dóma er að ræða eða þegar til stendur að dæma ungan brotamann í óskilorðsbundið fangelsi.
Íslandsdeild Amnesty International styður frumvarpið heilshugar. Tryggja þarf að börn og fullorðnir með ódæmigerð líffræðileg kyneinkenni njóti mannréttindaverndar, að börn með ódæmigerð kyneinkenni sæti ekki skaðlegum og ónauðsynlegum inngripum og að trans fólk geti fengið lagalega viðurkenningu á kyni sem byggist á sjálfsákvörðunarrétti. Veita á einstaklingum leyfi til að breyta nafni sínu og kynskráningu lagalega, þar með talið á opinberum gögnum sem útgefin eru af ríkinu, á skjótan, aðgengilegan og gagnsæjan máta og í samræmi við kynvitund einstaklingsins.