Sádi-Arabía

Ellefu ára fangelsi fyrir að styðja réttindi kvenna

Síðustu ár hafa yfir­völd í Sádi-Arabíu haldið því fram að þau séu að vinna að umbótum á rétt­indum kvenna í konungs­ríkinu. Hin þrítuga Manahel al-Otaibi trúði því og hélt að hún gæti tjáð skoð­anir sínar frjáls­lega og klætt sig að vild. Nú sér hún fram á að sitja áratug í fang­elsi og að loforð stjórn­valda eru ekkert nema orðin tóm.

Áður en hún var hand­tekin var Manahel líkams­rækt­ar­kennari og hugrökk talskona fyrir rétt­indum kvenna. Hún notaði samfé­lags­miðla til að kalla eftir auknu frelsi kvenna í landi sínu. Manahel var hand­tekin 16. nóvember 2022 og ákærð fyrir að brjóta netör­ygg­islög þar sem hún studdi rétt­indi kvenna á Twitter (nú X) og fyrir að setja á Snapchat mynd af sér í versl­un­ar­mið­stöð án þess að klæðast abaya, hefð­bundnum kufli sem nær frá toppi til táar.

Máli hennar var vísað til dómstóls sem sérhæfir sig í málum gegn hryðju­verkum, svokallaðs sérstaks saka­mála­dóm­stóls sem er alræmdur fyrir ósann­gjörn rétt­ar­höld og harða dóma. Manahel var hinn 9. janúar 2024 dæmd í 11 ára fang­elsi fyrir „hryðju­verka­brot“ vegna tján­ingar hennar á samfé­lags­miðlum. Dómur var kveðinn upp í leyni og ekki opin­ber­aður fyrr en nokkrum vikum síðar.

Manahel tjáði fjöl­skyldu sinni að hún hefði verið barin af samfanga sínum í nóvember 2023. Í kjöl­farið voru henni meinuð samskipti við umheiminn og gat því ekki átt í samskiptum við neinn. Í apríl 2024 gat Manahel loks hringt í fjöl­skyldu sína og virtist hún í uppnámi. Hún sagði að sér hefði verið haldið í einangrun og hún hefði aftur mátt þola grófar barsmíðar, sem leiddi til fótbrots sem var ekki meðhöndlað.

Krefstu þess að stjórn­völd í Sádi-Arabíu leysi Manahel al-Otaibi úr haldi.

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Rússland

Stríðsglæpum gegn Úkraínubúum í haldi verður að linna

Í Rússlandi eru þúsundir úkraínskra hermanna og óbreyttra borgara í haldi. Fjölskyldur stríðsfanganna fá engar upplýsingar og ná ekki sambandi við fjölskyldumeðlimi sem eru í haldi. Þær leita örvæntingafull upplýsinga um ástvini sína og fjölskyldumeðlimi. Margir fangar njóta ekki grundvallarréttinda svo sem að eiga í samskiptum við ástvini og fjölskyldur og verða fyrir ómannúðlegri meðferð eins og pyndingum, kynferðisofbeldi og er synjað um heilbrigðisþjónustu á sama tíma og heilsu þeirra hrakar. Þessi meðferð stríðsfanga telst til stríðsglæpa og glæpa gegn mannúð. Skrifaðu undir ákall um að rússnesk yfirvöld bindi enda á þessa stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð.

Haítí

Vernd fyrir börn gegn glæpagengjum á Haítí

Síaukið ofbeldi glæpagengja á Haítí bitnar verst á haítískum börnum. Þau eru svipt öruggu rými til að leika sér og læra og eru neydd til að alast upp í umhverfi þar sem ótti og óvissa ráða ríkjum. Vegna áskorana hjá haítískum yfirvöldum og aðgerðaleysis alþjóðasamfélagsins hefur neyðin aukist og skapað vítahring ofbeldis og vanrækslu. Skrifaðu undir ákall til haítískra yfirvalda og krefstu verndar fyrir börn á Haítí.

Bandaríkin

Hætta steðjar að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Bandaríkjunum

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur heitið því að hrinda í framkvæmd áform um brottvísanir sem beinast að milljónum innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Bandarískum stjórnvöldum ber skylda samkvæmt alþjóðalögum að tryggja að lög þeirra, stefnur og verklag leiði ekki til aukinnar hættu á að brotið sé á mannréttindum innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Skrifaðu undir ákall um að Trump forseti virði mannréttindi innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd og hætti við þau áform um vísa fjölda fólks úr landi.

Íran

Hætta er á fleiri aftökum í tengslum við mótmæli

Að minnsta kosti tíu einstaklingar í Íran eiga yfir höfði sér aftöku í kjölfar dauðadóma í tengslum við mótmæli sem kennd voru við slagorðið „Kona, líf, frelsi“. Skrifaðu undir ákall um að írönsk stjórn­völd ógildi dauðadóma yfir friðsama mótmælendur og leysi úr haldi þá mótmæl­endur sem eru í haldi fyrir það eitt að tjá sig með frið­sam­legum hætti.

Ekvador

Binda þarf enda á notkun gasbruna í Amazon-skóginum

Stjórnvöld í Ekvador hafa ekki framfylgt dómsúrskurði sem féll í vil níu baráttustúlkna og ungra kvenna um að binda enda á notkun gasbruna í Amazon-skóginum. Gasbrunar brjóta á réttindum íbúa nærliggjandi svæða vegna mengunar sem þeir valda. Skrifaðu undir ákall og krefstu þess að forseti Ekvador hrindi af stað áætlun um að stöðva notkun gasbruna (sérstaklega þeirra sem staðsettir eru 5 km frá byggð) í samræmi við dómsúrskurð, verndi mannréttindi íbúa sem búa í grennd við gasbruna, stuðli að réttlátum orkuskiptum þar sem dregið verður smám saman úr notkun jarðefnaeldsneytis.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.