Hætta á framsali norsks manns til Grikklands fyrir að hjálpa farand- og flóttafólki
Tommy Olsen, norskur mannréttindafrömuður og stofnandi samtakanna Aegean Boat Report, var handtekinn 16. mars 2026 á heimili sínu í Tromsö í Noregi í kjölfar evrópskrar handtökuheimildar sem gefin var út af grískum yfirvöldum. Hún tengist störfum hans í þágu flótta- og farandfólks. Hann var leystur úr gæsluvarðhaldi 20. mars en á nú á hættu að verða framseldur til Grikklands þar sem hann gæti átt von á gæsluvarðhaldi í allt að 18 mánuði.
Ákærur ekki byggðar á sönnunargögnum
Í febrúar 2026 var Tommy upplýstur af norskum yfirvöldum um að gefin hefði verið út handtökuheimild vegna ákæra um að tilheyra glæpasamtökum í tengslum við lögreglurannsókn í Grikklandi frá árinu 2022. Þessar ákærur eru ekki byggðar á sönnunargögnum og er það mat Amnesty International að verið sé að misbeita lögum um smygl.
Skrásetur brot grískra yfirvalda
Tommy hefur í fjölmörg ár aðstoðað flótta- og farandfólk við að komast til Grikklands, skráð báta í háska og skrásett alvarleg mannréttindabrot, eins og ólöglegar aðferðir yfirvalda við að þvinga báta aftur út á haf. Hann hefur veitt mannúðarsamtökum og alþjóðlegum fjölmiðlum mikilvægar upplýsingar og séð til þess að fólki í háska sé bjargað. Þetta eru lögmæt mannúðarstörf sem eru mikilvæg til að draga yfirvöld til ábyrgðar.
Misbeiting laga
Frá árinu 2018 hafa grísk yfirvöld misbeitt lögum gegn smygli til að gera mannúðarstörf refsiverð. Fjöldi fólks hefur sætt rannsóknum og saksóknum. Amnesty International hefur lýst því skýrt yfir að grísku lögin gegn smygli samræmist ekki alþjóðlegum stöðlum og veiti mannréttindafrömuðum ekki fullnægjandi vernd gegn saksóknum og ákærum.
Hvað getur þú gert?
Skrifaðu undir og krefstu þess að norsk yfirvöld framselji ekki Tommy Olsen, virði alþjóðleg mannréttindalög og verndi mannréttindastörf.
Uppfærsla – Góðar fréttir
Dómstóll í Noregi komst að þeirri niðurstöðu um miðjan maí 2026 að Tommy Olsen yrði ekki framseldur frá Noregi. Málinu er þó ekki lokið í Grikklandi sem þýðir að Tommy á hættu á handtöku ferðist hann út fyrir Noreg. Amnesty mun því fylgjast áfram með málinu.

