Sádi-Arabía

Kennari á eftirlaunum hlaut dauðadóm fyrir gagnrýni

Sérstakur saka­mála­dóm­stóll í Sádi-Arabíu dæmdi Mohammad bin Nasser al-Ghamdi, 55 ára kennara á eftir­launum, til dauða þann 9. júlí 2023 fyrir frið­sam­legar aðgerðir sínar á Twitter [nú X] og YouTube, þar á meðal fyrir tíst þar sem hann gagn­rýnir utan­rík­is­stefnu konungs og krón­prins Sádi-Arabíu, kallar eftir lausn klerka í haldi og mótmælir verð­hækk­unum í landinu. Mohammad bin Nasser al-Ghamdi var dæmdur til dauða fyrir það eitt að nýta tján­ing­ar­frelsið. Hann var aðeins með tíu fylgj­endur á Twitter.

Samkvæmt bróður hans var Mohammad bin Nasser al-Ghamdi hand­tekinn þann 11. júní 2022 af örygg­is­sveitum þar sem hann sat með konu sinni og börnum fyrir utan heimili sitt í borg­inni Mekka. Honum var haldið í einangrun í Dhahban-fang­elsinu nálægt borg­inni Jeddah í fjóra mánuði og var meinað að hafa samband við fjöl­skyldu sína eða lögfræðing. Það var ekki fyrr en Mohammad bin Nasser al-Ghamdi var færður í annað fang­elsi í Riyadh að hann fékk loks að hafa samband við fjöl­skyldu sína.

Dauða­dóm­urinn yfir Mohammad bin Nasser al-Ghamdi er til marks um stig­versn­andi kúgun í konungs­ríkinu og miskunn­ar­leysi gagn­vart öllum þeim sem þora að sýna minnsta andóf í landinu.

Skrifaðu undir og krefstu þess að dauða­dóminn yfir Mohammad bin Nasser al-Ghamdi verði felldur úr gildi og hann verði skil­yrð­is­laust leystur úr haldi án tafar þar sem hann er í haldi fyrir það eitt að tjá sig frið­sam­lega.

Einnig er þess krafist að Mohammad bin Nasser al-Ghamdi fái þá lækn­is­með­ferð sem hann þarfnast á meðan hann er enn í haldi.

Uppfært: Dauða­dómur yfir Mohammad bin Nasser al-Ghamdi var fellur úr gildi í ágúst 2024. Hann er enn í haldi og ekki vitað til þess að hann hafi fengið nýjan dóm.

Frétta­til­kynning um Sádi-Arabíu

Nánar um stöðu tján­ing­ar­frelsis í Sádi-Arabíu

 

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Esvatíní

Esvatíní: Leysa þarf fyrrum þingmenn úr haldi

Bacede Mabuza og Mthandeni Dube, fyrrum þingmenn og baráttumenn fyrir lýðræði, eru samviskufangar í Esvatíní. Þeir voru handteknir 25. júlí 2021 fyrir að tjá sig um kúgun ríkisvaldsins og kalla eftir úrbótum á stjórnarskránni. Þeir hlutu 85 ára og 58 ára dóm á grundvelli kúgandi laga gegn hryðjuverkum og uppreisnaráróðri.

Bretland

Bretland: Fella þarf niður ákærur á hendur friðsömum mótmælendum 

Friðsamir mótmælendur voru handteknir á Bretlandi fyrir að mótmæla banni við Palestine Action-aðgerðahópnum sem tók gildi 5. júlí 2025. Í ágúst voru rúmlega 700 mótmælendur handteknir í London og víðar um Bretland. Til viðbótar voru 857 mótmælendur handteknir í London á einum degi, þann 6. september.

Ísrael

Leysa þarf palestínskan lækni úr haldi

Palestínski læknirinn Hussam Abu Safiya er framkvæmdastjóri Kamal Adwan-spítalans og hefur tjáð sig um hrun heilbrigðiskerfisins á Gaza. Hann var handtekinn að geðþótta af ísraelskum yfirvöldum 27. desember 2024 og hefur verið í haldi síðan þá.

Hong Kong

Lýðræðissinni í fangelsi fyrir friðsamleg mótmæli

Owen Chow Ka-shing er ungur aðgerðasinni sem hefur beitt sér fyrir lýðræði í Hong Kong. Hann var virkur þátttakandi í mótmælahreyfingu sem kennd var við regnhlífar árið 2014 og í mótmælum gegn frumvarpi um framsal frá Hong Kong til Kína árið 2019. Chow er í fangelsi fyrir að nýta tjáningar- og fundafrelsið með friðsamlegum hætti. Hann afplánar nú 12 ára og 10 mánaða dóm.

Fílabeinsströndin

Upplýsingafulltrúi stéttarfélags fær tveggja ára fangelsisdóm

Hettuklæddir menn handtóku Ghislain Duggary Assy, upplýsingafulltrúa stéttarfélags kennara, í kjölfar þess að bandalag stéttarfélaga kennara blés til verkfalls á Fílabeinsströndinni. Ghislain fékk tveggja ára fangelsisdóm. Skrifaðu undir ákall um að Ghislain Duggary Assy verði leystur úr haldi, tafarlaust og án skilyrða.

Rússland

Stríðsglæpum gegn Úkraínubúum í haldi verður að linna

Í Rússlandi eru þúsundir úkraínskra hermanna og óbreyttra borgara í haldi. Fjölskyldur stríðsfanganna fá engar upplýsingar og ná ekki sambandi við fjölskyldumeðlimi sem eru í haldi. Þær leita örvæntingafull upplýsinga um ástvini sína og fjölskyldumeðlimi. Margir fangar njóta ekki grundvallarréttinda svo sem að eiga í samskiptum við ástvini og fjölskyldur og verða fyrir ómannúðlegri meðferð eins og pyndingum, kynferðisofbeldi og er synjað um heilbrigðisþjónustu á sama tíma og heilsu þeirra hrakar. Þessi meðferð fanga telst til stríðsglæpa og glæpa gegn mannúð. Skrifaðu undir ákall um að rússnesk yfirvöld bindi enda á þessa stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð.

Haítí

Vernd fyrir börn gegn glæpagengjum á Haítí

Síaukið ofbeldi glæpagengja á Haítí bitnar verst á haítískum börnum. Þau eru svipt öruggu rými til að leika sér og læra og eru neydd til að alast upp í umhverfi þar sem ótti og óvissa ráða ríkjum. Vegna áskorana hjá haítískum yfirvöldum og aðgerðaleysis alþjóðasamfélagsins hefur neyðin aukist og skapað vítahring ofbeldis og vanrækslu. Skrifaðu undir ákall til haítískra yfirvalda og krefstu verndar fyrir börn á Haítí.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.