Fréttir
12. maí 2021Ísraelskar öryggissveitir hafa beitt óhóflegri, endurtekinni og óréttmætanlegri valdbeitingu gegn palestínskum mótmælendum á hernumdu svæðum Austur-Jerúsalem síðustu daga. Átök hafa stigmagnast og flugskeyti milli vopnaðra palestínskra hópa á Gaza-svæðinu og Ísraels hafa sært fjölda fólks og tugir hafa látist. Meirihlutinn af þeim eru Palestínubúar.
Síðan að Ramadan-hátíðin byrjaði þann 13. apríl hefur togstreita á svæðinu aukist. Vegna hátíðarinnar sækjast Palestínubúar eftir því að biðja við al-Aqsa moskuna í gamla borgarhlutanum í Jerúsalem en Ísraelar hafa takmarkað aðgang að þeirra að því svæði. Síðustu daga hefur ísraelska lögreglan rekið fólk brott af svæðinu með notkun vopna, þar á meðal handsprengjum. Palestínubúar hafa mótmælt þessum árásum í Austur-Jerúsalem en Ísrael hefur mætt þeim með hörku.
Mótmæli hafa einnig staðið yfir vegna yfirvofandi þvingaðra brottflutninga í Sheikh Jarrah-hverfinu í Jerúsalem. Amnesty International hefur skráð geðþóttahandtökur sem beinst hafa að friðsamlegum mótmælenda af hálfu Ísraels sem hefur einnig beitt óhóflegu valdi, handsprengjum og vatnsbyssum handahófslega á mótmælendur og heimili í Sheikh Jarrah. Mótmælin byrjuðu eftir úrskurð dómstóls í Jerúsalem um að fjölskyldur skyldu yfirgefa heimili sín í Sheikh Jarrah-hverfinu til að ryðja svæði fyrir ísraelska landnema.
Ákall Amnesty International
Amnesty International kallar eftir því að ísraelsk stjórnvöld hætti umsvifalaust þvinguðum brottflutningum Palestínubúa af heimilum sínum í hverfinu Sheikh Jarrah og árásum á Palestínubúa í Austur-Jerúsalem. Samtökin kalla einnig eftir því að málsaðilar beggja megin virði alþjóðleg mannúðarlög og geri allar mögulegar varrúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir að almennir borgarar verði fyrir skaða.
Að auki verður alþjóðasamfélagið að draga Ísraelsríki til ábyrgðar fyrir kerfisbundin brot á alþjóðalögum.
„Ísrael má ekki komast enn og aftur upp með árásir á Palestínubúa sem eru einungis að verja rétt sinn til lífs og mótmæla þvinguðum brottflutningum. Það er ekki fullnægjandi að einungis lýsa yfir áhyggjum þess efnis að Ísrael hundsi alþjóðlegar skuldbindingar. Það þarf að fordæma alvarleg brot þess, þar á meðal þvingaða brottflutninga, stækkun landtökusvæða og ómannúðlega kúgun gegn fólki sem mótmælir slíkum brotum.“
Saleh Higazi framkvæmdastjóri Amnesty International í Miðausturlöndum og Norður-Afríku.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu