Ársskýrsla Íslandsdeildarinnar 2021
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 2021 er komin út og verður kynnt á aðalfundi í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, miðvikudaginn 23. mars 2021 kl. 17:00.
Ársskýrsla Íslandsdeildar Amnesty International fyrir árið 2021 er komin út og verður kynnt á aðalfundi í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, miðvikudaginn 23. mars 2021 kl. 17:00.
Árleg herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi, árið 2021 gekk vel en að þessu sinni söfnuðust alls 66.180 undirskriftir vegna tíu mála á aðgerðakort, í sms-aðgerðaneti, netákalli og á vefsíðu herferðarinnar, auk þess sem nokkur hundruð skrifuðu stuðningskveðjur til þolenda og fjölskyldna þeirra.
Íslandsdeild Amnesty International fagnar frumvarpi þessu og telur þær breytingar sem í því felast tímabærar, einkum þá að við ákvörðun hegningar, sbr. 70. gr. hegningarlaga (hgl.), beri að taka til greina hvort brot megi rekja til nánar tilgreindra atriða er varða brotaþola persónulega og brot þannig af meiði hatursglæpa.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á Norrænu ungliðaráðstefnuna sem í ár verður haldin í Finnlandi. Umsóknarfrestur er til 2. maí, 2022.Norræna ungliðaráðstefnan, Nordic Youth Conference, er árleg ráðstefna fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára frá Finnlandi, Noregi, Danmörk, Íslandi og Færeyjum. Ár hvert hittast um fimmtíu ungliðar og læra um mannréttindi og aðgerðastarf. Í ár verður ráðstefnan haldin í Tuusula í Finnlandi, sem er í nágrenni Helsinki, dagana 27. júní til 1. júlí.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn miðvikudaginn 23. mars 2022 kl. 17 í húsnæði deildarinnar, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík, 3. hæð. Einnig verður honum streymt.
Þær breytingar sem lagðar eru til á lögum um atvinnuréttindi útlendinga mæla fyrir um að þeir umsækjendur sem fái dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða á grundvelli sérstakra tengsla við landið séu undanþegnir frá kröfu um tímabundið atvinnuleyfi hér á landi.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að fyrrgreindur samningur verði lögfestur, en hann var fullgiltur hér á landi í desember 2016. Alþjóðasamningur hefur ekki bein réttaráhrif á Íslandi fyrr en hann hefur verið lögfestur. Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks yrði mikil réttarbót og myndi tryggja með lögum þau réttindi sem samningurinn kveður á um. Markmið samnings er, líkt og í greinargerðinni segir, að “efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra, jafnframt því að efla og vinna að virðingu fyrir eðlislægri mannlegri reisn þess”.
Aukin áhersla á betrun, sáttamiðlun og samfélagsþjónustu sem fullnustuúrræði er kærkomin og mikilvæg fyrir ungt fólk sem hefur misstigið sig og komist í kast við lögin. Telur Amnesty International það ákaflega jákvætt að börn fái að afplána óskilorðsbundna dóma með samfélagsþjónustu.Tilgangurinn með þessu frumvarpi ætti að mati Amnesty International fyrst og fremst að vera sá að reyna að halda ungum brotamönnum frá fangelsi eins og mögulegt er, þ.e. í þeim tilvikum þegar um ítrekaða skilorðsbundna dóma er að ræða eða þegar til stendur að dæma ungan brotamann í óskilorðsbundið fangelsi.
Dagana 22. janúar – 3. febrúar fór fram listaverkauppboð á vef Gallerí Fold þar sem allur ágóði rann til Amnesty International.
Íslandsdeild Amnesty International hefur áhyggjur af fleiri ákvæðum frumvarpsins en sér sér ekki fært að koma þeim ítarlega til skila að svo stöddu sökum skamms tímafrests sem gefinn var. Sem dæmi má nefna að frumvarpið gerir strangari kröfu m.a. um rétt einstaklinga til að fá mál sitt endurskoðað í samanburði við hin Norðurlöndin, þ.m.t. Svíþjóð. Þykir því ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af þróun virðingar fyrir mannréttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Amnesty International styður að ríki setji lög um lágmarksaldur til að ganga í hjónaband. Ríki eiga að banna og koma í veg fyrir að einstaklingar séu þvingaðir eða neyddir til að ganga í hjónaband undir öllum kringumstæðum, hvort sem þeir eru börn eða fullorðnir.
Dagana 22. janúar til 3. febrúar fer fram vefuppboð til styrktar Amnesty International á vefsíðu Gallerí Fold, www.myndlist.is. Á uppboðinu verður frábært úrval listaverka sem listafólk hefur gefið í verkefnið. Við hvetjum öll sem hafa í huga að kaupa sér list á árinu og styrkja mikilvæg málefni að fylgjast með!