1.505 niðurstöður

  • Hvíta-Rússland: Íþróttir nýr vígvöllur stjórnvalda

    Íþróttafólk í Hvíta-Rússlandi fórnar nú íþróttaferli sínum og frelsi fyrir það eitt að tjá sig um mannréttindabrot í heimalandi sínu. Amnesty International stendur fyrir herferðinni #StandWithBelarus til að sýna íþróttafólkinu í Hvíta-Rússlandi stuðning í mannréttindabaráttu þess. Krystsina Tsimanouskaya, íþróttakona frá Hvíta-Rússlandi og þátttakandi á Ólympíuleikunum í Japan í ár óskaði eftir alþjóðlega vernd í pólska sendiráðinu í Tókýó þann 2. ágúst 2021 í kjölfar þess að hvítrússnesk yfirvöld reyndu að þvinga hana aftur til heimalands síns.

  • Kúba: Leysið friðsama mótmælendur úr haldi

    Þúsundir komu saman þann 11. júlí á Kúbu til að mótmæla ríkisstjórninni vegna efnahagsástandsins, skorts á lyfjum, og almennra takmarkana á tjáningarfrelsinu. Mögulega eru hundruð mótmælenda í fangelsi og ríkið þaggar niður í gagnrýnisröddum með fjölda ákæra. Krefjumst þess að friðsamir mótmælendur verði leystir umsvifalaust úr haldi án skilyrða. 

  • Alsír: Herjað á aðgerðasinna

    Samkvæmt rannsókn Amnesty International hafa alsírsk stjórnvöld herjað á aðgerðasinna sem hafa nýtt rétt sinn til tjáningar eða friðsamlegra mótmæla fyrir kosningar sem fram fóru þann 12. júní síðastliðinn. Að minnsta kosti 37 aðgerðasinnar voru handteknir með óréttmætum hætti fyrir þátttöku í mótmælum eða gagnrýni á stjórnvöld á tímabilinu 26. mars til 26. maí 2021. Auk þess voru a.m.k. 273 aðgerðasinnar  enn í haldi í lok júní 2021.

  • Fræðslumyndbönd fyrir flóttafólk og aðra innflytjendur

    Íslandsdeild Amnesty International og Mannréttindaskrifstofa Íslands hafa gefið út þrjú fræðslumyndbönd um mannréttindi á sex tungumálum (íslensku, ensku, pólsku, spænsku, persnesku og arabísku). Myndböndin þrjú fjalla um jafnrétti, réttindi á vinnumarkaði og réttindi barna. Markmiðið með myndböndunum er að veita flóttafólki og öðrum innflytjendum gagnlegar grunnupplýsingar um réttindi í þessum þremur málaflokkum í tengslum við íslenskt samfélag.

  • Haítí: Baráttumaður fyrir mannréttindum í hættu

    Milostène er aðgerðasinni sem stýrir umhverfisverndarsamtökum Action pour la Reforestation et la Défense de l’Environnement, AREDE í Trou-duNord, bæ í norðausturhluta Haítí. Síðan 2013 hafa samtökin barist fyrir réttindum smábænda. Hann hefur margoft orðið fyrir árásum eða morðtilraunum vegna starfa sinna. 

  • Hvíta-Rússland: Blaðamaður numinn á brott og pyndaður eftir að flugvél sem hann var í var gert að lenda

    Raman Pratasevich, blaðamaður frá Hvíta-Rússlandi á flótta sem hefur gagnrýnt hvítrússneska ríkisstjórnina, var ólöglega handtekinn þann 23. maí af stjórnvöldum í Hvíta-Rússlandi ásamt maka sínum, Sofiu Sapega. Þau voru í flugi frá Aþenu til Vilníus þegar vélinni var beint í aðra átt og gert að lenda í Minsk vegna sprengjuhótunar. Raman Pratasevich var eftirlýstur í heimalandi sínu vegna „hryðjuverka“ fyrir vinnu sína sem blaðamaður. Verði hann dæmdur sekur á hann yfir höfði sér 20 ára fangelsisvist.

  • Afmælisviðburður Amnesty International

    Í tilefni af 60 ára afmæli Amnesty International, í dag föstudaginn 28. maí, fagnaði Íslandsdeildin stóra deginum í Pósthússtræti við Austurvöll. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar samtakanna, hélt stutta ræðu og opnaði útisýningu um sögu og mannréttindasigra samtakanna síðustu 60 ára í máli og myndum. Þá veitti Claudia Ashanie Wilson viðurkenninguna „Aðgerðasinni Amnesty International“ fyrir hönd stjórnar Íslandsdeildar Amnesty International.

  • Mannréttindabaráttan í 60 ár

    Í 60 ár hefur alþjóðahreyfingin Amnesty International barist þrotlaust gegn mannréttindabrotum og hefur skilað árangri fyrir hundruð þúsunda einstaklinga um heim allan. Amnesty International fagnar afmæli sínu, sögu og sigrum með opnun útisýningar í Pósthússtræti í dag, föstudaginn 28. maí, klukkan 17:00 ásamt því að veita viðurkenninguna Aðgerðasinni Amnesty International til að heiðra einstakling sem hefur barist fyrir mannréttindum með aðgerðum sínum af krafti og eljusemi.