Dauðarefsingin: Árleg skýrsla Amnesty International 2019
Sádi-Arabía framkvæmdi fleiri aftökur árið 2019 en þau höfðu gert í tvo áratugi þar á undan en heildarfjöldi aftaka í heiminum hefur þó farið lækkandi á sama tíma samkvæmt árlegri skýrslu Amnesty International um dauðarefsinguna. Aftökur í Sádi-Arabíu voru 184 í fyrra en það er mesti fjöldi aftaka á einu ári sem Amnesty International hefur skráð þar í landi í tvo áratugi.

