Litum fyrir mannréttindi
Íslandsdeild Amnesty International, í samstarfi við hóp íslensks listafólks, hefur gefið út litabókina LITUM FYRIR MANNRÉTTINDI.
Íslandsdeild Amnesty International, í samstarfi við hóp íslensks listafólks, hefur gefið út litabókina LITUM FYRIR MANNRÉTTINDI.
Kveðið er á um rétt til bestu mögulegu geðheilsu í alþjóðalögum en raunin er sú að á heimsvísu eru fáir sem hafa aðgang að góðri geðheilbrigðisþjónustu. Kórónuveirufaraldurinn hefur gert vandamálið enn stærra. Í nýlegri könnun Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar kom í ljós að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu er takmarkað eða ekkert.
Eldarnir sem komu upp í flóttamannabúðum í Moria hafa gert aðstæður verri fyrir þúsundir flóttafólks sem nú hafa lélegt aðgengi að vatni, mat og heilbrigðisþjónustu. Margir hafa misst eigur sínar, meðal annars mikilvæg skjöl er varða umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd. Eldra fólk, fólk í viðkvæmum hópum, börn, óléttar konur og fleiri eru meðal þeirra sem nauðsynlega vantar hjálp.
Ályktunin um Filippseyjar sem mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti þann 7. október er tapað tækifæri til að ná fram réttlæti fyrir þolendur þúsunda aftaka án dóms og laga, segir Amnesty International.
Nýlega var kosið í stjórn Háskólafélags Íslandsdeildar Amnesty International. Tilgangur Háskólafélagsins er að stuðla að fræðslu og umræðu um mannréttindi í háskólasamfélaginu á Íslandi, sem og sýna samstöðu með þolendum mannréttindabrota.
Síðan árið 2018 hafa milljónir manna mótmælt á götum Frakklands. Fólk hefur mótmælt stefnu ríkisstjórnarinnar sem er sögð ýta undir félagslegan og hagfræðilegan ójöfnuð, aðgerðaleysi stjórnvalda við loftslagsbreytingum og umbótum á eftirlaunakerfinu. Stjórnvöld hafa brugðist við með valdi gegn mótmælendum.
Það sem árið 2020 hefur kennt okkur er hversu nauðsynlegir netheimar eru fyrir félagsleg tengsl og samskipti. Netþjónustur eins og Facebook og Google voru líflína okkar þegar heimsfaraldurinn skall á og gerðu okkur kleift að eiga í samskiptum við fjölskyldu og vini, sinna vinnu og námi að heiman ásamt því að vera okkar helsti staður til að leita að upplýsingum um mál tengd heilsu okkar. Ný heimildarmynd á Netflix „The Social Dilemma“ sýnir fram á að þessar netþjónustur hafa þó kostað okkur ákveðin mannréttindi, þar á meðal geðheilsuna.
Stjórnvöld á Indlandi frystu nýverið alla bankareikninga Indlandsdeildar Amnesty International og komu þar með í veg fyrir áframhaldandi starfsemi deildarinnar. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem stjórnvöld herja á deildina á síðustu tveimur árum.
Slóvakíska þingið hefur nú til umfjöllunar frumvarp sem felur í sér hindranir á þungunarrofi og setur heilsu kvenna og annarra sem leita eftir þungunarrofi í hættu ásamt því að brjóta á mannréttindum þeirra. Slóvakíska þingið verður að hafna þessu frumvarpi.
Íslandsdeild Amnesty International fordæmir harkalega og ómannúðlega framkomu íslenskra stjórnvalda í garð barna á flótta. Á síðustu árum hafa ítrekað komið upp mál þar sem til hefur staðið að vísa börnum úr landi sem hafa dvalið hér í lengri tíma og náð að skjóta rótum og aðlagast íslensku samfélagi.
Þann 29. júlí 2020 var blaðamaðurinn Omar Radi handtekinn og ákærður fyrir að grafa undan þjóðaröryggi og fyrir nauðgun. Marokkósk stjórnvöld hafa áreitt hann síðan skýrsla frá Amnesty International sem birt var í júní 2020 sýndi fram á að njósnað hefði verið um hann í gegnum síma hans. Omar Radi hefur verið ötull gagnrýnandi ríkisstjórnarinnar og hefur rannsakað spillingu stjórnvalda.
Í litlu þorpi í borginni Quezon á Filippseyjum varar presturinn Robert Reyes íbúana við ógn sem er sýnu verri en kórónuveirufaraldurinn, ítrekaðar aftökur án dóms og laga. Á aðeins hálfs mánaðar tímabili jarðsetti séra Reyes þrjú fórnarlömb sem voru tekin af lífi án dóms og laga á svæðinu. Eitt þeirra var Gilbert Paala, 49 ára gamall sölumaður, sem hafði nýverið lokið 10 ára fangelsisafplánun fyrir brot á lögum um vímuefni. Stutt var síðan hann hóf að sjá fyrir fjölskyldu sinni að nýju. Hann var tekinn af lífi þann 20. júlí 2020.