Sigrar ársins 2021
Mannréttindabarátta Amnesty International hefur skilað miklu árið 2021 um heim allan. Lögum hefur verið breytt til samræmis við mannréttindi og samviskufangar leystir úr haldi. Hér má sjá yfirlit yfir helstu sigra ársins.
Mannréttindabarátta Amnesty International hefur skilað miklu árið 2021 um heim allan. Lögum hefur verið breytt til samræmis við mannréttindi og samviskufangar leystir úr haldi. Hér má sjá yfirlit yfir helstu sigra ársins.
Leiðtogar G20-ríkjanna hafa í yfirlýsingu sinni í lok leiðtogafundarins í Róm síðustu helgi gefið loforð um að kanna leiðir til að hraða bólusetningum í heiminum og vinna að því að ná markmiði Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um að 40% íbúa hvers lands í heiminum séu bólusettir í enda árs.
Taktu þátt og skrifaðu undir 10 áríðandi mál einstaklinga sem beittir eru alvarlegum órétti. Þannig söfnum við milljónum undirskrifta og mögnum saman þrýsting á stjórnvöld víða um heim sem brjóta mannréttindi.
Aðför stjórnvalda að tjáningarfrelsinu, ásamt villandi upplýsingum sem hafa flætt um heiminn á tímum kórónuveirufaraldursins, hefur gert fólki gríðarlega erfitt fyrir að nálgast réttar upplýsingar til að takast á við vaxandi alþjóðlegan heilbrigðisvanda.
Konum á dauðadeild hefur í mörgum tilfellum verið neitað um réttlæti fyrir líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi sem þær hafa þurft að þola og var undanfari og ástæða glæpsins sem þær voru sakfelldar fyrir. Amnesty International vekur athygli á þessu á alþjóðadegi gegn dauðarefsingunni þann 10. október.
Milljarðir íbúa fátækari ríkja fá ekki aðgang að covid-19 bóluefnum með lífshættulegum afleiðingum.
Ný skýrsla Amnesty International, A Double Dose of Inequality: Pharma companies and the Covid-19 vaccines crisis, greinir frá því hvernig sex helstu lyfjaframleiðendur Covid-19 bóluefnanna ýta undir mannréttindaneyð. Fyrirtækin hafa ekki forgangsraðað dreifingu bóluefnanna til fátækari landa og neita að afsala hugverkaréttindum og deila tækniþekkingu.
Um heim allan þagga stjórnvöld niður í mótmælendum með lögreglukylfum. Kylfurnar eru notaðar sem þöggunartól.
Alltof oft er lögreglan of fljót að grípa til valdbeitingar, oft gegn friðsömum mótmælendum sem eru einungis að nýta rétt sinn til að koma saman með friðsömum hætti. Á undanförnum árum og á tímum heimsfaraldursins hafa stjórnvöld víðs vegar um heim takmarkað tjáningarfrelsið og réttinn til friðsamlegrar samkomu, oft með ofbeldisfullum hætti.
Nú er undirbúningur hafinn fyrir árlegu alþjóðlegu herferð Amnesty International, Þitt nafn bjargar lífi sem ýtt verður úr vör síðar á árinu. Árið 2020 söfnuðust fjöldi undirskrifta í herferðinni til stuðnings málum tíu þolenda mannréttindabrota. Á Íslandi söfnuðust 70.405 undirskriftir en á heimsvísu var gripið til tæplega 4,5 milljóna aðgerða í heildina. Þessi gífurlegi samstöðumáttur hefur nú þegar skipt sköpum. Okkur hafa borist nokkur gleðitíðindi vegna framfara í málum frá herferðinni í fyrra.
Pegasus-verkefnið hefur afhjúpað að njósnabúnaði frá ísraelska fyrirtækinu NSO Group hefur verið beitt til að brjóta mannréttindi um allan heim.
Samkvæmt árlegri skýrslu Amnesty International um dauðarefsinguna kom kórónuveirufaraldurinn ekki í veg fyrir aftökur í 18 löndum árið 2020. Þrátt fyrir fækkun á heimsvísu voru nokkur lönd sem beittu dauðarefsingunni og fjölguðu jafnvel aftökum á sama tíma og heimurinn einbeitti sér að því að vernda fólk gegn skæðri veiru.