Kórónuveira: Tilmæli Amnesty International til stjórnvalda
Þann 11. mars 2020 lýsti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin því yfir að kórónuveirufaraldurinn væri orðinn að heimsfaraldri og skoraði á ríki heims að grípa til brýnna aðgerða til að bregðast við honum. Flest ríki Evrópu hafa gripið til harðra aðgerða í tilraun sinni til að stöðva útbreiðslu kórónuveirufaraldursins og takast á við aukið álag á heilbrigðiskerfið.

