Alþjóðlegt: Styddu réttindi verkafólks í fataiðnaði
Í nýlegum skýrslum Amnesty International kemur fram að ríkisstjórnir, verksmiðjur og alþjóðleg tískufyrirtæki hagnast á kúgun verkafólks í fataiðnaði og brotum á vinnuréttindum í Bangladess, Pakistan, á Srí Lanka og Indlandi. Tilraunum verkafólks til að bæta starfsaðstæður er oft mætt af hörku af vinnuveitendum og jafnvel ríkinu.

