Samviskusendiherrar Amnesty International 2019
Greta Thunberg og loftslagsverkalls-hreyfing skólabarna, Fridays for Future, eru heiðruð sem samviskusendiherrar Amnesty International 2019.
Greta Thunberg og loftslagsverkalls-hreyfing skólabarna, Fridays for Future, eru heiðruð sem samviskusendiherrar Amnesty International 2019.
Amnesty International vinnur nú að mótun nýrrar heildarstefnu samtakanna sem svara þarf helstu áskorunum okkar tíma. Þitt álit skiptir máli og leitum við því til þín eftir hugmyndum og mögulegum lausnum!
Zak Kostopoulos, grískur samkynhneigður aðgerða- og mannréttindasinni lést þann 21. september 2018 í kjölfar fólskulegrar líkamsárásar. Zak, einnig þekktur undir drag-sviðsnafninu Zackie Oh, var baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks og HIV- smitaðra.
Tveir blaðamenn Reuters í Myanmar, Wa Lone og Kyaw Soe Oo, voru leystir úr haldi án skilyrða þann 7. maí eftir náðun forseta landsins.
Í mars síðastliðnum var ár liðið frá því að vikuleg mótmæli hófust á Gaza til að kalla eftir því að ólöglegri herkví á Gaza yrði aflétt og palestínsku flóttafólki leyft að snúa aftur á landsvæði sem það var hrakið frá fyrir rúmum 70 árum síðan. Enn eru eru þúsundir óbreyttra borgara enn að takast á við afleiðingar grimmilegra aðgerða Ísraelsríkis, sem hefur ekki enn verið dregið til ábyrgðar.
Fyrirtæki eins og Airbnb, Booking.com, Expedia og TripAdvisor eru með á skrá fjölda hótela, gististaða, ferðamannastaða og skoðunarferða á landtökusvæðum Ísraela á hernumdu svæðum Palestínu vitandi það að landtökusvæði Ísraela eru ólögleg og stríðsglæpur samkvæmt alþjóðlegum lögum.
Formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Páll Magnússon, tók í dag á móti ákalli Íslandsdeildar Amnesty International um verndun mannréttinda intersex barna á Íslandi ásamt 3252 undirskriftum einstaklinga víðsvegar að úr heiminum meðal annars frá Þýskalandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum.
Malak al Kashef er 19 ára trans kona frá Egyptalandi sem haldið er í karlafangelsi eftir að hafa verið ranglega sökuð um glæp. Malak er mannréttindasinni og þekkt fyrir hugrekki í baráttu sinni fyrir réttindum hinsegin fólks í Egyptalandi.
Fyrir fimm árum síðan var fólki af sama kyni fyrst heimilt að ganga í hjónaband í Bretlandi. Hins vegar er það enn ólöglegt á Norður-Írlandi. Þrýstum á stjórnvöld og forsætisráðherra Bretlands að breyta þessu.
Þann 4. febrúar var perúvíska ríkisborgaranum Vanessu Gómez vísað frá Argentínu ásamt tveggja ára syni sínum eftir að hafa búið þar í landi í 15 ár. Hún var neydd til að skilja eftir hin börnin sín tvö, 5 og 14 ára, án þess að kveðja þau. Brottvísunin á rætur að rekja til rekja til þess að Vanessa sat af sér dóm árið 2014. Útlendingaeftirlitið í Argentínu verður að ógilda skipunina og sameina fjölskylduna á ný þar sem brotið er á réttindum barnanna samkvæmt lands- og alþjóðalögum.
Árleg skýrsla Amnesty International um stöðu dauðarefsingarinnar er komin út. Aftökum á heimsvísu árið 2018 fækkaði um þriðjung frá árinu áður og fjöldi aftaka var með allra lægsta móti í áratug.
Þrjár baráttukonur fyrir mannréttindum voru nýverið leystar úr haldi í Sádi-Arabíu. Þær leiddu baráttu fyrir réttindum kvenna til að keyra, til að binda enda á mismunun gegn konum og forræði karlmanna yfir konum.