Valdayfirtaka talíbana í Afganistan þann 15. ágúst 2021 hefur haft gríðarleg áhrif á líf allra Afgana en skerðing á réttindum kvenna og stúlkna er sérstaklega afgerandi.
Afganskar konur gegndu embættisstörfum, gengu í skóla og háskóla, ráku fyrirtæki og gátu starfað í öllum atvinnugeirum. Nú er flestum konum meinað um þátttöku í atvinnulífinu á þeim forsendum að það eigi eftir að setja lög um það.
Stúlkum eldri en 10 ára er meinað að ganga í grunnskóla og konur eiga erfitt með háskólanám þar sem gilda stífar reglur um aðskilnað kynja.
Talíbanar afturkalla áform um að leyfa menntun stúlkna
Þann 23. mars síðastliðinn töldu afganskar stúlkur í efri bekkjum grunnskóla að þær mættu aftur mæta í skóla eftir sjö mánaða bið en svo reyndist ekki. Talíbanar drógu til baka áform sín um að hleypa stúlkum 11-14 ára aftur í skóla og tilkynntu að skólar væru lokaðir þar til hannaðir yrðu skólabúningar sem fylgdu afgönskum hefðum, menningu og „sjaríalögum”.
Afganskar konur hafa áorkað miklu síðastliðin 20 ár þrátt fyrir pólitískan óstöðugleika og átök í landinu. Þær eiga á mikilli hættu að glata þessum árangri undir núverandi stjórn Talíbana.
Alþjóðasamfélagið hefur skuldbundið sig til að tala fyrir kvenréttindum í Afganistan. Skrifaðu undir þetta ákall til að þrýsta á alþjóðasamfélagið, þar með talið ríkisstjórn Íslands, að beita áhrifamætti sínum.
Réttindi afganskra kvenna og stúlkna verða að vera óhagganlegt skilyrði í samningaviðræðum við talíbana.
Hvettu íslensk stjórnvöld og alþjóðasamfélagið til að:
- Nota samningsstöðu sína við talíbana til að ítreka mikilvægi kvenréttinda.
- Eiga samtal við kvenréttindafrömuði og kvenkyns aðgerðasinna frá Afganistan til að fræðast um það hvernig best megi efla kvenréttindi þar í landi.
- Ráðstafa fjármagni í verkefni og starfsemi sem styrkir stöðu kvenréttinda í Afganistan.