Í byrjun forsetatíðar TrumpsBandaríkjaforseta skrifaði hann undir forsetatilskipun þess efnis að herfangelsið í Gvantanamóyrði áfram haldið opnu. Síðan þá hafa engir nýir fangar komið þangað og aðeins einn verið fluttur þaðan.Biden, nýr forseti Bandaríkjanna, hefur nú tækifæri til að breyta þessari grimmilegu stefnu og loka fangabúðunum fyrir fullt og allt.
Enn eru 40 fangar, múslímskir karlmenn, þar í haldií óákveðinn tíma. Flestir þeirra eru þar án ákæru og margir hafa sætt pyndingum. Enginn þessara fanga hefur fengið sanngjörn réttarhöld.
Fimm fangar í Gvantanamófengu leyfi fyrir mörgum árum að vera fluttir til annars lands en þeim er samt sem áður enn haldið þar. Einn þeirra er Toffiq al-Bihanisem fékk leyfi til flutnings til annars lands árið 2010. Hann var pyndaður af leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, áður en hann var fluttur í Gvantanamó árið 2003. Toffiq al-Bihani hefur enn ekki verið ákærður eða fengið réttarhöld.
Það er ljóst að þarna eiga mannréttindabrot sér stað og nú er það í höndum stjórnarBidensað loka fangabúðunum í Gvantanamó.
Krefstu þess að bandarísk stjórnvöld loki Gvantanamó-fangabúðunum án tafar!
Amnesty International mælir með myndinni The Mauritanian sem byggð er á sannri sögu fanga í Gvantanamó-fangabúðunum.
Mehran Raoof, bresk-íranskur baráttumaður fyrir réttindum verkafólks, var handtekinn í Íran þann 16. október 2020. Hann hefur verið í einangrun síðan þá. Einangrunarvist sem stendur yfir í 22 tíma eða lengur á sólarhring og umfram 15 daga er brot á banni gegn pyndingum og annarri illri meðferð. Mehran Raoof var eingungis handtekinn vegna baráttu sinnar fyrir réttindum verkafólks og stuðnings við verkalýðsfélög.
Pablo Hasél, spænskur rappari, var nýlega dæmdur í níu mánaða fangelsi og sektaður um 30 þúsund evrur fyrir vegsömun hryðjuverka sem og fyrir róg og níð gegn krúnunni og stjórnkerfi landsins. Dómurinn var byggður á 64 tístum og einu rapplagi. Hann er dæmdur fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið sitt.
Í byrjun forsetatíðar Trumps Bandaríkjaforseta skrifaði hann undir forsetatilskipun þess efnis að herfangelsið í Gvantanamó yrði áfram haldið opnu. Síðan þá hafa engir nýir fangar komið þangað og aðeins einn verið fluttur þaðan. Biden, nýr forseti Bandaríkjanna, hefur nú tækifæri til að breyta þessari grimmilegu stefnu og loka fangabúðunum fyrir fullt og allt.
Um þessar mundir vinna bresk stjórnvöld að því að koma nýju frumvarpi í gegnum þingið sem kveður á um að pyndingar og stríðsglæpir af hálfu breskra hermanna verði ekki lengur refsiverð ef liðin eru fimm ár frá því brotin voru framin. Nái frumvarpið í gegn er breski herinn í raun hafinn yfir lög þar sem stríðsglæpir breskra hermanna fyrnast á fimm árum. Þetta þýðir að nær ógerlegt verður að sækja þá til saka fyrir glæpi eins og pyndingar ef liðin eru fimm ár.
Maati Monjib, marokkóskur fræðimaður og mannréttindasinni, var handtekinn þann 29. desember 2020 á veitingastað í Rabat, höfuðborg Marokkó. Síðan þá hefur hann verið í varðhaldi að geðþótta. Síðan þá hefur hann verið í varðhaldi að geðþótta. Hann og fjölskylda hans hafa legið undir ásökunum um peningaþvætti og hefur rannskókn á því máli staðið yfir síðan 7. október 2020. Rannsóknin er enn ein tilraunin til að kúga Maati Monjib vegna gagnrýni hans á stjórnvöld og ötula vinnu hans í þágu tjáningarfrelsis í Marokkó. Maati Monjib er samviskufangi og verður að leysa hann úr haldi án tafar!
Maria Ressa, mannréttindafrömuður og aðalritstjóri netfréttamiðilisins Rappler, og Rey Santos Jr. fyrrum rannsóknarblaðamaður hjá Rappler eru fyrsta fjölmiðlafólkið á Filippseyjum sakfellt fyrir meiðyrði á netinu. Þau standa frammi fyrir allt að sex ára fangelsi. Mál þeirra byggir á grein sem Rey skrifaði árið 2012 en það var áður en lögin um netglæpi tóku gildi sem ákæran byggði á.
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni.
Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.